Bættu svarhlutfall þitt og svartíma
Svarhlutfall þitt og svartími eru mælikvarðar á það hversu fljótt og reglulega þú svarar fyrirspurnum og bókunarbeiðnum.
Svarhlutfallið er mikilvægast en það hefur áhrif á stöðu þína sem ofurgestgjafa og stöðu þína í leit. Svartíminn gefur gestum hugmynd um hve fljótt þeim verður svarað en það hefur minni áhrif á stöðu þína sem gestgjafa.
Hvernig svarhlutfallið er reiknað út
Svarhlutfall þitt er hlutfall nýrra fyrirspurna og bókunarbeiðna sem þú svaraðir (með því að samþykkja/forsamþykkja eða hafna) innan sólarhrings undanfarna 30 daga. Ef þú hefur haft færri en 10 skilaboðaþræði undanfarna 30 daga miðast svarhlutfallið við 10 nýjustu þræðina undanfarna 90 daga.
Ef gestur sendir þér fyrirspurn, spurningu eða önnur skilaboð en bókunarbeiðni, með hnappinum „senda gestgjafa skilaboð“, þarft þú að svara fyrirspurninni innan sólarhrings til að viðhalda svarhlutfallinu. Ef gesturinn sendir þér bókunarbeiðni þarftu að samþykkja hana eða hafna henni innan sólarhrings til að viðhalda svarhlutfallinu.
Svarhlutfallið til að ákvarða stöðu ofurgestgjafa er reiknað með öðrum hætti og byggist á svörum þínum undanfarna 365 daga.
Hvernig svartíminn er reiknaður út
Svartími þinn er meðaltíminn sem það tók þig að svara öllum nýjum skilaboðum undanfarna 30 daga.
Hvar þú getur nálgast svarhlutfall þitt og -tíma
Þú getur nálgast bæði svarhlutfall þitt og -tíma neðst á hverri skráningarsíðu. Þú getur einnig nálgast þessar upplýsingar í aðganginum þínum undir:
- Innsýn fyrir flesta gestgjafa
- Frammistöðu fyrir gestgjafa sem nota verkfæri faggestgjafa
Bættu svarhlutfall þitt og svartíma
Til að bæta svarhlutfall og svartíma skaltu gera eftirfarandi eins fljótt og hægt er innan sólarhrings frá því að fyrirspurn eða bókunarbeiðni berst:
- Samþykktu eða hafnaðu bókunarbeiðnum
- Forsamþykktu eða hafnaðu bókunarfyrirspurnum
- Sendu sértilboð í kjölfar bókunarfyrirspurnar
- Svaraðu nýjum fyrirspurnum frá gestum
Ef þú svarar að meira en 24 klukkustundum liðnum telst það sem síðbúið svar og mun lækka svarhlutfall þitt og lengja svartíma.
Einungis fyrstu skilaboðin milli gestgjafa og gesta hafa áhrif á svarhlutfallið og svartímann. Þú þarft ekki að senda síðustu skilaboðin í samtali til að viðhalda svarhlutfallinu þínu.
Greinar um tengt efni
- Gestgjafi
Fylgstu með stöðu þinni sem ofurgestgjafa
Viltu sjá hvernig þér gengur að uppfylla hvert skilyrði til að vera ofurgestgjafi? Opnaðu stjórnborð gestgjafa. - Gestgjafi
Dragðu forsamþykki gests til baka
Svo framar sem gesturinn hafi ekki enn gengið frá bókun eru engar afleiðingar við því að draga forsamþykki til baka. - Gestgjafi
Hafna ferðabeiðni
Þú getur alltaf hafnað fyrirspurnum eða beiðnum sem þú getur ekki sinnt en þú ættir að gera það innan sólarhrings.