Ef gesturinn fellir niður bókun
Stundum kemur það fyrir að áætlanir breytast. Við erum þér innan handar ef gestur þarf að hætta við bókun sína.
Þegar gestur fellir niður bókun:
- Látum við þig strax vita
- Opnum við fyrir viðkomandi dagsetningar í dagatalinu
- Göngum við frá útborgunum og endurgreiðslum
Útborgun til þín þegar gestur fellir niður bókun
Ef þú átt útborgun inni millifærum við hana einum sólarhring frá áætluðum innritunartíma gests. Það ræðst af banka þínum eða fjármálastofnun hve langur tími líður þar til greiðslan berst þér. Ef þetta er í fyrsta sinn sem þú tekur á móti gestum má vera að við höldum útborguninni eftir í 30 daga frá því að bókunin var staðfest.
Kynntu þér nánari upplýsingar um hvenær þú færð útborgun þína.
Dagatalið þitt þegar gestur afbókar
Við opnum strax fyrir viðkomandi dagsetningar á dagatalinu þínum ef gestur afbókar, þannig að þú getir tekið við annarri bókun.
Endurgreiðslur til gesta ef þeir afbóka
Gestir sem afbóka fá sjálfvirka endurgreiðslu ef afbókunarreglan þín gerir ráð fyrir því. Í sumum tilvikum gætu gestir átt rétt á endurgreiðslu samkvæmt reglum okkar um endurgreiðslu og -bókun eða reglum okkar um óviðráðanlegar aðstæður, óháð afbókunarreglu bókunarinnar.
Uppfyllti dvöl gests þíns ekki viðmið þín fyrir gestgjafa? Kynntu þér hvernig þú getur veitt endurgreiðslu að hluta til.
Ef gestur hjá þér afbókar eftir innritun
Afbóki gestur eftir innritun verður viðkomandi að yfirgefa eignina samstundis og skilmálar afbókunarreglu þinnar gilda áfram.
Að breyta afbókunarreglunni fyrir væntanlegar bókanir
Viltu breyta afbókunarreglunni hjá þér? Svona velur þú afbókunarreglu.
Athugaðu: Breytingar á afbókunarreglu gilda aðeins um nýjar bókanir og hafa engin áhrif á bókanir sem eru í vinnslu eða hafa þegar verið staðfestar.
Greinar um tengt efni
- Gestgjafi
Útborgun til þín ef gestur afbókar
Ef gestur afbókar (annaðhvort fyrir ferð eða meðan á henni stendur) fær hann sjálfkrafa endurgreitt samkvæmt afbókunarreglunni hjá þér, með … - Gestgjafi
Endurgreiða gesti þínum
Endurgreiðslur til gesta fara eftir því hvort þær eru fyrir eða eftir ferð viðkomandi. - Gestgjafi
Hvað þýðir það að framfylgja eða falla frá afbókunarreglunum mínum?
Ef gestur hjá þér breytir bókun á langdvöl með minna en 30 daga fyrirvara hefur þú val um hvort þú framfylgir afbókunarreglunni eða fellur f…