Tillögur birtast þegar slegið er inn í leitarreitinn. Notaðu örvarnar upp og niður við yfirferð. Ýttu á „enter“ til að velja. Ef nokkur orð eru valin saman eru þau notuð sem leitarstrengur. Ef tillagan er hlekkur opnast sú síða í vafranum.
Leiðbeiningar
Gestur

Sæktu eða prentaðu út ferðaáætlun þína fyrir vegabréfsáritun

Þú getur sótt ferðaáætlunina eða prentað hana út fyrir vegabréfsáritun með möguleika á að bæta við fullu nafni gesta eða einfaldlega sýna heildarfjölda þeirra. Þér gefst auk þess möguleiki á að velja tungumálið sem ferðaáætlunin birtist á.

Svona sækir þú PDF-skrá fyrir vegabréfsáritun

Svona sækir þú PDF-skrá fyrir vegabréfsáritun úr tölvu

  1. Smelltu á ferðir og veldu ferðina sem þú vilt sækja ferðaáætlun fyrir
  2. Smelltu á sækja PDF-skrá fyrir vegabréfsáritun undir bókunarupplýsingum
  3. Undir hver er með í för? bætir þú við nöfnum allra gesta, ef við á
  4. Smelltu á næsta eða sleppa
  5. Veldu á hvaða tungumáli þú vilt að ferðaáætlunin birtist
  6. Smelltu á vista

Veldu að bæta fullu nafni gesta við ferðaáætlunina

Það er undir þér komið hvort ferðaáætlunin feli í sér fullt nafn gesta eða einfaldlega fjölda gesta í bókuninni. Þurfir þú að prenta ferðaáætlunina út vegna vegabréfsáritunar getur það komið sér vel að bæta við fullu nafni gesta.

Fyrir notendur í Kína þarf að slá inn nafn gesta að lögum á kínversku eða ensku, í samræmi við kjörtungumál ferðaáætlunarinnar.

Upplýsingar sem birtast á ferðaáætlun fyrir vegabréfsáritun

Ferðaáætlunin felur í sér eftirfarandi:

  • Forsíðumynd skráningar
  • Inn- og útritunartíma ásamt dagsetningu
  • Fjölda gesta (þ.m.t. nöfn gesta ef þú hefur bætt þeim við)
  • Staðfestingarkóða
  • Húsleiðbeiningar
  • Húsreglur
  • Gestgjafa gistingarinnar (eiginnafn gestgjafa)
  • Greidda fjárhæð

Skoðaðu ferðaáætlunina á öðrum tungumálum

Þú getur útbúið ferðaáætlun á öðru tungumáli en kjörtungumáli þínu. Þegar þú sækir eða prentar út ferðaáætlunina hefur þú möguleika á að velja úr lista yfir algeng tungumál.

Ef tungumálið sem þú leitast eftir er ekki í boði getur þú prófað að þýða ferðaáætlunina sem ljósmynd eða skjal með Google Translate eða öðru þýðingarforriti eða -þjónustu.

Þurfir þú að breyta gestafjölda í bókuninni

Hægt er að breyta gestafjölda bókana sem eru enn í vinnslu eða hafa ekki enn hafist. Kynntu þér hvernig þú bætir við eða fjarlægir gesti úr bókun ef þú þarft að gera breytingar á gestafjölda áður en ferðaáætlun er sótt eða prentuð út fyrir vegabréfsáritun.

Var þessi grein gagnleg?

Greinar um tengt efni

Fáðu aðstoð í tengslum við bókanir, aðganginn þinn og fleira.
Innskráning eða nýskráning