Afbókun upplifunar sem gestgjafi
Þrátt fyrir að afbókanir af hálfu gestgjafa komi sjaldan fyrir og sumar afbókanir séu ekki á valdi gestgjafa, geta slíkar afbókanir raskað ferðaáætlunum gesta og grafið undan trausti á samfélaginu okkar.
Ef fella þarf niður upplifun og það er ekki vegna veðurs, neyðartilviks eða öryggisvandamáls, gætir þú þurft að greiða afbókunargjald.
Svona afbókar þú upplifun sem gestgjafi
Svona bókar þú upplifun sem gestgjafi úr tölvu
- Smelltu á stjórnborð upplifana > dagatal
- Smelltu á tiltekna dagsetningu í dagatalinu
- Finndu tímann sem þú vilt hætta við og smelltu svo á upplifunarkortið til að opna upplifunina
- Smelltu á hætta við upplifun
- Veldu ástæðuna sem lýsir því best hvers vegna þú þurfir að afbóka og smelltu á næsta
- Yfirfarðu afbókunarreglu upplifunargestgjafa og smelltu á næsta
- Bættu við skilaboðum til gesta og smelltu á hætta við þessa upplifun
Svona afbókar þú upplifun sem gestgjafi úr Airbnb appinu
- Pikkaðu á umsjón með upplifunum
- Pikkaðu á dagatalið
og veldu dagsetninguna og tímann sem þú vilt afbóka
- Pikkaðu á hætta við upplifun
- Veldu ástæðuna sem lýsir því best hvers vegna þú þurfir að afbóka og pikkaðu á næsta
- Yfirfarðu afbókunarreglu upplifunargestgjafa og pikkaðu á næsta
- Bættu við skilaboðum til gesta og pikkaðu á hætta við þessa upplifun
Svona afbókar þú upplifun sem gestgjafi úr Airbnb appinu
- Pikkaðu á umsjón með upplifunum
- Pikkaðu á dagatalið
og veldu dagsetninguna og tímann sem þú vilt afbóka
- Pikkaðu á hætta við upplifun
- Veldu ástæðuna sem lýsir því best hvers vegna þú þurfir að afbóka og pikkaðu á næsta
- Yfirfarðu afbókunarreglu upplifunargestgjafa og pikkaðu á næsta
- Bættu við skilaboðum til gesta og pikkaðu á hætta við þessa upplifun
Svona afbókar þú upplifun sem gestgjafi úr farsímavafra
- Pikkaðu á dagatalið
- Pikkaðu á tiltekna dagsetningu í dagatalinu
- Finndu tímann sem þú vilt hætta við og pikkaðu svo á upplifunarkortið til að opna upplifunina
- Pikkaðu á hætta við upplifun
- Veldu ástæðuna sem lýsir því best hvers vegna þú þurfir að afbóka og pikkaðu á næsta
- Yfirfarðu afbókunarreglu upplifunargestgjafa og pikkaðu á næsta
- Bættu við skilaboðum til gesta og pikkaðu á hætta við þessa upplifun
Hvaða afbókunargjöld eiga við
Þú gætir þurft að greiða gjald ef þú afbókar upplifun sem gestur hefur nú þegar bókað.
Við gætum innheimt gjald sem nemur allt að 20% af bókunarvirði afbókuðu upplifunarinnar, sem við drögum af næstu útborgun. Við látum þig vita ef gjald verður innheimt áður en þú gengur frá afbókuninni.
Tíðar afbókanir eða að mæta ekki á staðinn brýtur gegn þjónustuskilmálum og gæti leitt til þess að upplifun þín verði fjarlægð af Airbnb.
Þurfir þú að hætta við upplifun sökum veðurs
Ef upplifun þín fer fram utandyra geturðu afbókað ef veðurskilyrði stofna öryggi gesta þinna í hættu eða valda óþægindum. Þú þarft ekki að greiða afbókunargjald. Mögulega höfum við samband við þig til að fá stoðgögn varðandi tilgreind veðurskilyrði.
Þurfir þú að hætta við upplifun sökum óvæntrar uppákomu
Okkur er ljóst að óvæntar uppákomur geta komið upp. Við föllum frá afbókunargjöldum vegna afbókana sem falla undir reglur um óviðráðanlegar aðstæður eða sem gerðar eru af gildum öryggisástæðum.
Hvað tekur við hjá gestum þegar þú afbókar bókun þeirra á upplifun
Gestir þínir verða látnir vita og fá endurgreitt að fullu.
Ef þú endurbókar gestina fyrir annan dag eða tíma eftir að þú afbókar
Ef þú og gestir þínir komið ykkur saman um annan dag eða tíma og þeir endurbóka upplifunina skaltuhafa samband við okkur eftir að þú afbókar til að láta okkur vita. Við göngum úr skugga um að gestirnir hafi samþykkt nýja fyrirkomulagið og afléttum öllum gjöldum sem lögð voru á í kjölfarið.
Greinar um tengt efni
- Gestur
Ef gestgjafi þinn fellir niður upplifun
Ef gestgjafi þarf að fella niður upplifun færðu strax að vita af því og þér verður endurgreitt að fullu. - Upplifunargestgjafi
Hvað ætti ég að gera ef slæmt veður hefur áhrif á upplifunina sem ég býð?
Ef veðurskilyrði stefna gestum í hættu áður en upplifun hefst eða meðan á henni stendur má afbóka hana án gjalda eða annarra viðurlaga. - Upplifunargestgjafi
Finndu afbókunarregluna sem gildir um þína upplifunarbókun
Upphæð endurgreiðslu ræðst af afbókunarreglu gestgjafa og því klukkan hvað og hvaða dag þú afbókar.