Queen
| Queen | |
| Queen árið 1984. John Deacon (til vinstri), Freddie Mercury (á miðju sviði), Brian May (neðst á myndinni), Roger Taylor (trommur) | |
| Bakgrunnur | |
| Uppruni | London, England |
| Tónlistarstefnur | Rokk |
| Ár | 1971 - nú |
| Útgefandi | Capitol, Parlophone, EMI, Hollywood, Island, Elektra |
| Vefsíða | queenonline.com/ |
| Meðlimir | |
| Núverandi | Brian May Roger Taylor |
| Fyrri | Freddie Mercury John Deacon |
Queen var bresk rokkhljómsveit sem kom fram á sjónarsviðið 1970. Hún var stofnuð af Freddie Mercury söngvara sveitarinnar, Roger Taylor trommuleikara og Brian May gítarleikara í London sama ár. Taylor og May höfðu áður verið í hljómsveitinni Smile. Félagarnir fengu ýmsa bassaleikara til liðs við sig áður en John Deacon var ráðinn bassaleikari sveitarinnar 1971. Þeir voru undir áhrifum frá meðal annars Bítlunum, framsæknu rokki og þyngra rokki á 8. áratugnum.
Hljómsveitin var með allra vinsælustu rokk-hljómsveitunum á áttunda og níunda áratugnum og frá henni hafa komið heimsþekkt lög á borð við „Bohemian Rhapsody“, „We Will Rock You“ og „Killer Queen“. Lag þeirra Bohemian Rhapsody sem var gefið út á plötunni A Night at the Opera árið 1975 var kosið vinsælasta lag allra tíma árið 2007. Queen hefur löngum verið talin ein besta rokk-hljómsveitin á sviði og margir telja þátt þeirra í Live Aid-tónleikunum árið 1985 vera bestu sviðsframkomu rokksögunnar.
Fredd Mercury lést árið 1991 úr alnæmi. Hljómsveitin gaf út síðustu plötu sína 1995, Made in heaven, meðal annars með upptökum Mercury. John Deacon hætti árið 1997 en May og Taylor hafa farið í tónleikaferðalög undir Queen nafninu með söngvurunum Paul Rodgers og Adam Lambert eftir aldamót.
Árið 2018 kom kvikmyndin Bohemian Rhapsody byggð á Queen og í samstarfi við May og Taylor.
Efnisyfirlit
Útgefið efni[breyta | breyta frumkóða]
Breiðskífur[breyta | breyta frumkóða]
- Queen (1973)
- Queen II (1974)
- Sheer Heart Attack (1974)
- A Night at the Opera (1975)
- A Day at the Races (1976)
- News of the World (1977)
- Jazz (1978)
- The Game (1980)
- Flash Gordon (1980)
- Hot Space (1982)
- The Works (1984)
- A Kind of Magic (1986)
- The Miracle (1989)
- Innuendo (1991)
- Made in Heaven (1995)
Meðlimir - Klassíska liðskipanin[breyta | breyta frumkóða]
- Freddie Mercury - söngur (1946 - 1991)
- Brian May - gítar (1947 - )
- Roger Taylor - trommur (1949 - )
- John Deacon - bassi (1951 - )
Gestasöngvarar[breyta | breyta frumkóða]
- Paul Rodgers (2004–2009)
- Adam Lambert (2011–)