Robin Williams
Williams árið 2011
Robin McLaurin Williams (21. júlí 1951 – 11. ágúst 2014) var bandarískur leikari og uppistandari. Meðal kvikmynda sem hann lék í eru Stjána bláa (1980), Good Morning, Vietnam (1987), Dead Poets Society (1989), Awakenings (1990), og Good Will Hunting (1997).
Hann var tilnefndur til óskarsverðlaunanna sem besti leikari þrisvar og vann verðlaun fyrir besta aukaleikara fyrir myndina Good Will Hunting. Han vann tvö Emmy verðlaun, fjögur Golden Globe-verðlaun, tvö Screen Actors Guild-verðlaun og fimm Grammy-verðlaun.
Williams átti við þunglyndi og áfengissýki að stríða yfir mestallann ferilinn. 11. ágúst 2014 fannst hann látinn eftir að hafa framið sjálfsmorð með hengingu á heimili sínu í Paradise Cay Kaliforníu.[1]
Tilvísanir[breyta | breyta frumkóða]
- ↑ Martin, Nick 13. ágúst 2014, „San Francisco Neighbours Mourn Robin Williams". Sky News. (BSkyB). Skoðað 13. ágúst2014.