2013
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |
Árið 2013 (MMXIII í rómverskum tölum) var 13. ár 21. aldar samkvæmt gregoríska tímatalinu og almennt ár sem hófst á þriðjudegi.
Efnisyfirlit
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
Janúar[breyta | breyta frumkóða]
- 14. janúar - Fyrsta Rammaáætlun fyrir Ísland var samþykkt á Alþingi.
- 15. janúar - Kóreski tölvuleikurinn ArcheAge kom út.
- 17. janúar - Vilborg Arna Gissurardóttir kom á Suðurpólinn og lauk þar með áheitagöngu sinni, 1140 km, sem hún gekk til styrktar kvennadeild Landspítala Íslands. Gangan tók 60 daga en í upphafi var stefnt að 50 dögum.
- 23. janúar - Fyrstu Pebble-snjallúrin komu á markað.
- 28. janúar - EFTA-dómstóllinn felldi úrskurð sinn í máli ESA gegn Íslandi og sýknaði Ísland af öllum liðum ákærunnar og hafnaði öllum kröfum sem gerðar voru á hendur þjóðinni.
Febrúar[breyta | breyta frumkóða]
- 15. febrúar - Chelyabinsk-loftsteinninn splundraðist í 23 km hæð yfir jörðu.
- 28. febrúar - Benedikt 16. lét af embætti sem páfi Rómversk-kaþólsku kirkjunnar.
Mars[breyta | breyta frumkóða]
- 6. mars - Á skömmum tíma snjóaði mikið og hvessti veður á Íslandi. Færð varð mjög slæm víða um land og 15 til 20 bíla árekstur varð á Hafnarfjarðarvegi við Kópavogslæk.
- 13. mars - Jorge Mario Bergoglio var kjörinn páfi og tók sér nafnið Frans.
- 20. mars - Kvikmyndin Queen of Montreuil var frumsýnd.
- 31. mars - Fyrsta tilvikið þar sem fuglaflensuveiran H7N9 smitaðist í mann greindist í Kína.
Apríl[breyta | breyta frumkóða]
- 20. apríl - Sprenging varð í olíuborpallinum Deepwater Horizon í Mexíkóflóa og úr varð mesti olíuleki í bandarískri sögu.
- 27. apríl - Alþingiskosningar voru haldnar á Íslandi. Framsóknarflokkurinn vann stórsigur og bætti við sig 10 þingmönnum.
Maí[breyta | breyta frumkóða]
- 18. maí - Emmelie de Forest sigraði Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2013 fyrir Danmörku með laginu „Only Teardrops“.
- 25. maí - Hallsteinsgarður í Grafarvogi var vígður.
Júní[breyta | breyta frumkóða]
Júlí[breyta | breyta frumkóða]
- 2. júlí - Skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis um Íbúðalánasjóð var birt þar sem rekstur Íbúðalánasjóðs á undangengnum árum var harðlega gagnrýndur.
- 9. júlí - Bandaríski tölvuleikurinn Dota 2 kom út.
- 12. júlí - Malala Yousafzai ávarpaði Sameinuðu þjóðirnar í New York á 16 ára afmælisdegi sínum og krafðist réttinda til menntunar fyrir alla.
- 19. júlí - Bandaríski gamanþátturinn Liv og Maddie hóf göngu sína á Disney Channel.
Ágúst[breyta | breyta frumkóða]
- 3. ágúst - Hassan Rouhani varð forseti Írans.
- 22. ágúst - Fyrsta útgáfa Kjarnans, stafræns fréttatímarits kom út.
- 28. ágúst - Bresk-bandaríska kvikmyndin Gravity var frumsýnd.
September[breyta | breyta frumkóða]
- 21. september - Hryðjuverkamenn frá Sómalíu gerðu árás á Westgate-verslunarmiðstöðina í Naíróbí í Kenýa og myrtu fólk í tugatali og allt að 200 særðust alvarlega. Meðal árásarmanna voru Bandaríkjamenn og Breti að því er kemur fram í fréttum. Hryðjuverkasamtökin Al-Shabab lýstu sig bera ábyrgð á tilræðinu.
Október[breyta | breyta frumkóða]
- 2. október - Franska kvikmyndin Eyjafjallajökull var frumsýnd.
- 7. október - Stöð 3 hóf göngu sína.
- 9. október - Yoko Ono var útnefnd heiðursborgari Reykjavíkur.
- 21. október - Hópur fólks sem mótmælti veglagningu um Gálgahraun í Garðabæ var handtekinn.
- 24. október - Nýr íslenskur 10.000 króna seðill var settur í umferð. Prentuð voru 4.000.000 stykki af honum eða 40 milljarðar króna.
Nóvember[breyta | breyta frumkóða]
- 1. nóvember - Skáldsagan Tímakistan eftir Andra Snæ Magnason kom út.
- 8. nóvember - Fellibylurinn Haiyan, sem er sá öflugasti sem gengið hefur á land í heiminum, reið yfir Filippseyjar. Borgin Tacloban varð rústir einar. Tugir þúsunda manna fórust og hundruð þúsunda lentu á vergangi. Hjálparstarf gekk illa meðal annars vegna vatnavaxta og vegaskemmda.
- 13. nóvember - Nýr turn á lóð Tvíburaturnanna í New York var vígður með viðhöfn. Hann er fyrsta nýbyggingin sem opnuð er á svæðinu. Turninn er 72 hæðir og 297,7 metrar á hæð.
- 20. nóvember - Lekamálið kom upp á Íslandi þegar Morgunblaðið og Fréttablaðið birtu upplýsingar úr minnisblaði frá Innanríkisráðuneytinu.
- 21. nóvember - Kreppan í Úkraínu hófst þegar Viktor Janúkóvitsj frestaði undirbúningi að inngöngu í Evrópusambandið.
- 22. nóvember - Norðmaðurinn Magnus Carlsen, 22 ára, varð heimsmeistari í skák er hann sigraði Viswanathan Anand í einvígi um heimsmeistaratitilinn. Hann fékk 6,5 vinninga á móti 3,5 vinningum Anands í 10 skákum.
- 27. nóvember - Bandaríska teiknimyndin Frosinn var frumsýnd.
- 30. nóvember - Tilkynnt var um Aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar um höfuðstólslækkun húsnæðislána, svokölluð skuldaleiðrétting verðtryggðra húsnæðislána almennings sem krafa hafði verið uppi um að eitthvað yrði gert í allt frá bankahruninu 2008.
- 30. nóvember - Tölvuhakkarinn AgentCoOfficial braust inn í tölvukerfi Vodafone Ísland og náði trúnaðargögn viðskiptavina Vodafone, þar með talin SMS-skilaboðum og setti á netið.
Desember[breyta | breyta frumkóða]
- 2. desember - Til skotbardaga kom á milli manns nokkurs og lögreglu í Árbæjarhverfi. Maðurinn varð fyrir skoti frá lögreglu og lést af völdum þess.
- 5. desember - Haldið var málþing í Landsbókasafni Íslands í tilefni af tíu ára afmæli íslensku Wikipediu.
- 12. desember - Dómar féllu í Héraðsdómi Reykjavíkur í svonefndu Al Thani-máli.
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 1. janúar - Patti Page, bandarísk söngkona (f. 1927).
- 7. janúar - Huell Howser, bandarískur leikari (f. 1945).
- 9. janúar - James M. Buchanan, bandarískur hagfræðingur (f. 1919).
- 11. janúar - Aaron Swartz, bandarískur forritari (f. 1986).
- 14. janúar - Conrad Bain, bandarískur leikari (f. 1923).
- 15. janúar - Nagisa Oshima, japanskur leikstjóri (f. 1932).
- 21. janúar - Michael Winner, breskur leikstjóri (f. 1935).
- 30. janúar - Haraldur Guðbergsson, íslenskur myndlistarmaður (f. 1930).
- 14. febrúar - Ronald Dworkin, bandarískur heimspekingur (f. 1931).
- 19. febrúar - Robert Coleman Richardson, bandarískur eðlisfræðingur (f. 1937).
- 23. febrúar - Maurice Rosy, belgískur myndasöguhöfundur (f. 1927).
- 23. febrúar - Þorvaldur Þorsteinsson, íslenskur myndlistarmaður (f. 1960).
- 28. febrúar - Donald A. Glaser, bandarískur eðlisfræðingur (f. 1926).
- 5. mars - Hugo Chávez, forseti Venesúela (f. 1954).
- 20. mars - Zillur Rahman, forseti Bangladess (f. 1929).
- 21. mars - Chinua Achebe, nígerískur rithöfundur (f. 1930).
- 28. mars - Richard Griffiths, breskur leikari (f. 1947).
- 1. apríl - Herdís Þorvaldsdóttir, leikkona (f. 1923)
- 3. apríl - Ruth Prawer Jhabvala, þýskur rithöfundur (f. 1927).
- 4. apríl - Ólafur Halldórsson, íslenskufræðingur (f. 1920).
- 8. apríl - Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands (f. 1925).
- 22. apríl - Ingólfur Júlíusson, íslenskur ljósmyndari (f. 1970).
- 30. apríl - Helgi Sigurður Guðmundsson, íslenskur athafnamaður (f. 1948).
- 6. maí - Giulio Andreotti, ítalskur stjórnmálamaður (f. 1919).
- 13. maí - Steingrímur Njálsson, íslenskur síbrotamaður (f. 1942).
- 4. júní - Hermann Gunnarsson, íslenskur íþróttafréttamaður, skemmtikraftur, þáttastjórnandi og knattspyrnumaður (f. 1946).
- 19. júní - Ólafur Rafnsson, íslenskur körfuknattleiksmaður (f. 1963).
- 19. júní - James Gandolfini, bandarískur leikari (f. 1961).
- 24. júní - Jóhannes Gijsen, biskup kaþólskra á Íslandi (f. 1932).
- 1. júlí - Róbert Arnfinnsson, íslenskur leikari (f. 1923).
- 13. júlí - Cory Monteith, kanadiskur leikari (f. 1982).
- 15. júlí - Jóhann G. Jóhannsson, íslenskur tónlistarmaður (f. 1947).
- 26. júlí - Sung Jae-ki, suðurkóreskur mannréttindafrömuður (f. 1967).
- 27. júlí - Jóhannes Jónsson, íslenskur verslunarmaður og fjárfestir (f. 1940).
- 12. ágúst - Jóhann Hollandsprins (f. 1968).
- 30. ágúst - Seamus Heaney, írskt skáld (f. 1939).
- 2. september - Ronald Coase, bandarískur hagfræðingur (f. 1910).
- 16. september - Kim Hamilton, bandarísk leikkona (f. 1932).
- 24. október - Zuzzurro, ítalskur leikari (f. 1946).
- 25. október - Marcia Wallace, bandarísk leikkona (f. 1942).
- 17. nóvember - Doris Lessing, breskur rithöfundur (f. 1919).
- 23. nóvember - Jay Leggett, bandarískur leikari (f. 1963).
- 30. nóvember - Paul Walker, bandarískur leikari (f. 1973).
- 5. desember - Nelson Mandela, forseti Suður-Afríku (f. 1918).
- 11. desember - Regina Derieva, rússneskt skáld (f. 1949).
- 14. desember - Peter O'Toole, enskur leikari (f. 1932).
- 23. desember - Mikhail Kalashnikov, rússneskur upfinningamaður (f. 1919).