Ef gestgjafi þinn fellir niður bókun
Gestgjafar gætu stundum þurft að fella niður bókun, en það er aðeins í undantekningartilvikum. Við vitum hvað það getur haft mikil áhrif á ferðaáætlanir. Engar áhyggjur, ef gestgjafi þinn afbókar fyrir innritun færð þú endurgreitt að fullu.
Endurgreiðsla til þín ef gestgjafi afbókar
Ef gestgjafi þinn afbókar fyrir innritun og þú ákveður að endurbóka ekki, færðu fulla endurgreiðslu sem felur einnig í sér þjónustugjöld.
Þú gætir átt rétt á bókunarinneign frá Airbnb sem þú getur notað til að ganga frá annarri bókun þegar í stað. Notir þú hana ekki innan þriggja sólarhringa munt þú sjálfkrafa fá fulla endurgreiðslu í staðinn. Ef þú átt ekki rétt á bókunarinneign verður þér endurgreitt þegar í stað. Frekari upplýsingar um hvað felst í bókunarinneignum.
Endurgreiðslan verður millifærð á sama greiðslumáta og þú notaðir við bókun. Það ræðst af banka þínum eða fjármálastofnun hve langur tími líður þar til fjárhæðin berst þér. Frekari upplýsingar um algengan úrvinnslutíma.
Aðstoð við endurbókun ef gestgjafi afbókar
AirCover fyrir gesti fylgir með hverri bókun til að tryggja að gestir sem lenda í vandræðum með bókun sína fái aðstoð. Ef gestgjafinn afbókar munum við aðstoða þig við að endurbóka svipaða gistiaðstöðu með hliðsjón af staðsetningu og þægindum miðað við framboð á svipuðu verði.
Hvernig við látum þig vita ef gestgjafinn afbókar
Þegar afbókun á sér stað færðu tölvupóst með öllum upplýsingum, þar á meðal upplýsingum um endurgreiðslu.
Ef gestgjafi biður þig um að afbóka
Ekki hætta við bókun fyrir gestgjafann ef hann lætur þig vita að hann geti ekki lengur tekið við þér. Sendu þess í stað skilaboð og biddu viðkomandi um að fella bókunina niður. Þannig átt þú rétt á því að fá endurgreitt að fullu.
Greinar um tengt efni
- Gestur
Ef gestgjafi biður þig um að afbóka
Ekki afbóka fyrir gestgjafa sem getur ekki tekið á móti þér. Óskaðu frekar eftir afbókunarbeiðni viðkomandi svo að þú fáir bestu mögulegu en… - Gestur
AirCover fyrir gesti
AirCover fyrir gesti fylgir með hverri bókun. Ef alvarlegt vandamál skyldi koma upp í skráðri eign á Airbnb og viðkomandi gestgjafi getur ek… - Gestur
Reglur um endurbókun og endurgreiðslu
Skoðaðu reglur okkar um endurbókun og endurgreiðslu.