Stjórnborð
Skilaboð
Mikilvægt er að spyrja réttra spurninga þegar þú ræður fagfólk til þess að aðstoða þig við verk þín. Hæer eru nokkrar mikilvægar ábendingar til þess að aðstoða þig við taka rétta ákvörðun:

Skoðaðu málið rækilega.

  • Skipulegðu verkið. Ákvarðaðu hvers kyns hönun og efni þu vilt. Því ítarlegri upplýsingar sem þú getur látið fagmanneskjuna fá, því nákvæmara verður tilboðið og endanleg vara.
  • Farðu yfir tilboð fagmanneskju og notandasíðu á StarOfService. Berðu saman verð, reynslu og fyrri verk til þess að ákvarða hvað virkar best fyrir þig. Gangtu úr skugga um að skoða StarOfService síðu verkbjóðanda til þess að skoða fyrr verk, umsagnir og vottorð til þess að aðstoða þig við að velja rétt.
  • Spyrðu spurninga. StarOfService gerir það auðvelt að hafa samband við fagfólk með því að nota beiðnisblað okkar og spjallforrit. Þér er frjálst að spyrja viðkomandi fagfólk eins margra spurninga og þörf er á. Góð mugmynd er að spyrjast fyrir um svipuð verk sem viðkomandi gæti hafa unnið, meðmæli fyrrum kúnna, hvort sérstakt leyfi þarf fyrir verki þínu og hvort viðkomandi mun ráða aðra til þess að aðstoða sig við verkið.
  • Athugið leyfisnúmer fagmanneskju og tryggingar. Sum verk krefjast tilskilinna réttinda og trygginga; lesið leiðbeiningar okkar um hvernig á að ganga úr skugga um að fagaðili sé með tilskilin réttindi og leyfi og hvernig á að finna þá tryggingu sem best fellur að þínu verki.

Athugið StarOfService notandasíðu fagaðila.

  • Fáið yfirlit. Nýtið notandasíðu fagaðila til þess að fá frekari upplýsingar sem ekki má finna í tilboðinu, t.d. reynsla, fjöldi viðskiptavina á StarOfService og hve margir starfsmenn hafa unnið hjá fyrirtækinu.
  • Umsagnir skipta máli. Umsagnir geta innihaldið mikivægar upplýsingar um stundvísi, tæknilega getu, próf, og gæði vinnu fagaðila. Staðfestar umsagnir eru umsagnir viðskiptavina sem réðu fagaðila í gegnum StarOfService á meðan óstaðfestar umsagnir koma frá viðskiptavinum sem fundu fagaðilann í annan máta. Þú getur einnig séð hvernig fagaðila brást við umsögnum til þess að sá upplýsingar um hvernig hann kemur fram við viðskiptavini.
  • Myndir eru 1,000 orða virði Þetta er klisja sen engu að síður satt. Fagaðilar getað sett upp myndir eða myndbönd á síður sínar til þess að sýna sín fyrri verk. Skoðið svipuð verk sem fagaðili hefur unnið. Ef þú finnur engar myndir getur þú alltaf haft samband við viðkomandi fagaðila og beðið hann/hana um að senda þér nokkrar.
  • Staðfestið skilríkin Á skilríkjasvæðinu má sjá hin ýmsu teikn um fyrri reynslu fagaðila á StarOfService. T.d. notandamyndamerki (brons, silfur eða gull) sem gefa til kynna gæði notandasíðunnar, bestu fagaðilamerkin gefa til kynna að fagaðili hafa fengið afar góðar umsagnir frá viðskiptavinum síðastliðið árið. Einnig má finna ferilsskoðunarmerki (sem þýðir að aðili hefur farið í gegnum formlega skoðun í sínu landi) eða leyfismerkið (sem gefur til kynna að okkur hefur tekist að staðfesta prófsvottorð í gegnum almenna gagnagrunna).

Skrifið upplýsingarnar niður (og geymið eintak).

  • Gefið fjöldan allan af upplýsingum. Gangtu úr skugga um að gefa sértækar upplýsingar um verkið til þess að fá tilboð frá fagfólki sem er til í og getur mætt þörfum þínum.
  • Greinið skýrt frá því hvað þið viljið. Ef þú ert að leita af einhverjum sérstökum stíl, hönnun eða tækni skaltu senda myndir eða láta þær fylgja með í verklýsingu. Þú getur einnig ávallt haft samband við fagmanneskju ef þú vilt ræða smáatriði í gegnum síma. Þegar þú hefur ráðið fagaðila þarf einnig að ákvaðra greiðslufyrirkomulag og sértækar forsendur verks þíns.
  • Skrifaðu undir samning. Þegar þú ert tilbúin(n) að ráða, er best að gera skriflegan samning til þess að tryggja að þú og fagaðili séu sammála, sérstaklega þegar það kemur að mjög flóknum og kostnaðarsömum verkum. Þegar kemur að stórum verkum eins og t.d. viðgerðum á íbúð hafa margir upplýsingar um umfang verksins og greiðslutilhögun í samningi. Þegar kemur að minni verkum, t.d. að þrífa íbúð einu sinni eða nudd er hægt að gera hlutina á einfaldari máta. Samningurinn gǽti innihaldið hver, hvað, hvar, hvenær og kostnaðinn við verkið. Þegar um er að ræða verkefni sem taka langan tíma, er ekki óráðlegt að ákvarða nokkrar greiðslur í samningi.
  • Geymið afrit af samningum og greiðslum. Geymið afrit af samskiptum, reikningum, staðfestingum á greiðslum, tryggingum og leyfum. Ef um byggingar eða framkvæmdarvinnu er að ræða væri hyggilegt að taka myndir á meðan verkið er í vinnslu. Myndir og gögn verja þig ef óvænt babb kemur í bátinn. Spurðu ávallt fyrirfram hvort aukakostnaður sé innifalinn og gangtu úr skugga um að fá kvittun frá fagaðila.

Notaðu dómgreindina.

  • Veldu ekki strax þann fagaðila sem bíður lægsta verð. Við viljum öll fá góðan díl, og oft er það svo að lágu tilboðin eru einfaldlega góðir dílar. Þó er skynsamlegt að spyrjast fyrir hvers vegna verðið er jafn lágt og raun ber vitni.
  • Taktu þér tíma. Hikaðu ekki við að spyrja spurninga og fá allar þær upplýsingar sem þig vantar áður en þú tekur ákvörðun um hvern ráða skal.
  • Fáðu aðstoð ef þú átt í vandræðum. Ef upp kemur vandamál á meðan verið er að vinna í verkinu þínu, reyndu þá fyrst að leysa það með viðkomandi fagaðila, sem virkar oftar en ekki. Ef ekki tekst að semja, láttu okkur þá vita. Við erum hér til þess að aðstoða.
  • Fylgið brjóstvitinu Ef eitthvað virkar eins og það á ekki að virka, treystið þá dómgreindinni. Mikilvægast er að þú takir þér þann tíma sem þarf til þess að ráða réttan aðila sem tryggir að verkið verður eins og ætlast var til.