Ástæða þess að greiðsla fari ekki í gegn eða henni sé hafnað
Greiðslum getur verið hafnað af ýmsum ástæðum. Hér eru nokkur dæmi um algengar villur sem gætu komið fram hjá þér og hvað þú getur gert til að leysa úr þeim.
Ljúktu öryggisvottun til að staðfesta kredit- eða debetkortið þitt
Geri bankinn kröfu um öryggisvottun birtir Airbnb þér beiðni þess efnis til að þú getir lokið henni. Ef þér tekst ekki að ljúka ferlinu eða lokar öryggisvottuninni gætu þér birst eftirfarandi villur:
- Bankinn þinn virðist hafa hafnað greiðslunni
- Ef þú stenst ekki öryggisvottun verður færslu þinni hafnað
Gakktu úr skugga um að samskiptaupplýsingar þínar hjá kreditkortafyrirtæki þínu eða banka séu réttar og hafðu samband ef þú átt í erfiðleikum með að ljúka öryggisvottuninni. Nánari upplýsingar um hvernig debet- eða kreditkort er staðfest með þríþættri öryggisvottun.
Gakktu úr skugga um að póstnúmer, CVV-númer og aðrar upplýsingar séu réttar
Ef heimilisfang, CVV-númer eða aðrar upplýsingar sem þú slærð inn stemma ekki við upplýsingarnar sem eru tengdar greiðslumáta þínum, gæti það komið í veg fyrir að greiðslan fari í gegn. Í þeim tilvikum gæti þér birst ein af eftirfarandi villum:
- Villa kom upp við að bæta greiðslumátanum þínum við
- Póstnúmer verður að stemma við upplýsingar á skrá hjá banka þínum
- Villa í netþjóni varð til þess að beiðnin fór ekki í gegn
- Óheimil færsla
- Ekki er heimilt að nota tilgreindan gjaldmiðil í þessu landi
Mikilvægt er að ganga úr skugga um að upplýsingarnar séu nákvæmlega eins og þær koma fram á korti þínu eða bankayfirliti. Ef þú átt enn í vandræðum skaltu hafa samband við bankann þinn eða fjármálastofnun eða prófa að nota annan greiðslumáta.
Prófaðu að ganga frá greiðslunni síðar
Kerfi okkar hefur mögulega greint vafasama virkni á aðgangi þínum ef ein af eftirfarandi villum birtist þér:
- Þú hefur fullnýtt aðgangsheimild þína á Airbnb
- Ekki virðist vera hægt að bæta þessum greiðslumáta við
- Ekki er hægt að bæta þessu kreditkorti við sem stendur
Þú þarft að bíða í allt að sólarhring til að tengjast aðgangi þínum og prófa að greiða aftur.
Notaðu annan greiðslumáta
Þú gætir þurft að nota annan greiðslumáta ef þér birtast einhver af eftirfarandi villum:
- Eitthvað fór úrskeiðis
- Ekki tókst að staðfesta kort þitt
- Ekki tókst að framkvæma aðgerðina
- Því miður fengum við ekki greiðsluheimild fyrir kreditkortið þitt
- Ógild upphæð
- Greiðsluvilla: Upphæðin er of há
- Ekki hægt að taka við greiðslu
Hafðu fyrst samband við banka þinn eða greiðslustofnun. Prófaðu að nota annan greiðslumáta til að bóka ef þú átt enn í vandræðum.
Breyttu gjaldmiðlinum sem þú greiðir með
Búsetuland þitt eða greiðslumáti gætu valdið því að ekki sé hægt að taka við gjaldmiðlinum sem þú notar á þeim tíma sem greiðslan á sér stað. Í slíkum tilvikum birtist þér eftirfarandi villa: Ekki er hægt að ganga frá þessari greiðslu með gjaldmiðli þínum.
Þú getur prófað að greiða með gjaldmiðlinum sem stungið er upp á eða notað annan greiðslumáta.
Yfirfarðu færsluhámark greiðslumáta þíns
Mögulega er færsluhámark á greiðslumáta þínum eða daglegt hámark sem banki þinn eða greiðslustofnun leggur á. Greiðslan þín fer ekki í gegn ef upphæðin fer yfir þessi mörk. Í slíkum tilvikum birtast þér eftirfarandi villur:
- Prófum þetta aftur. Stundum er nóg að breyta um gjaldmiðil.
- account_volume_limit
Best er að hafa samband við banka þinn eða fjármálastofnun til að komast að því hvort hægt sé að finna lausn eða hækka daglega hámarkið. Þú getur einnig prófað að nota annan greiðslumáta.
Gakktu frá greiðslunni í gegnum tölvu eða farsímavafra
Þér gæti birst eftirfarandi villa þegar þú notar Alipay sem greiðslumáta í Airbnb appinu: Pöntun er ekki til - Alipay.
Ef það gerist skaltu prófa að ganga frá bókuninni í gegnum tölvu eða farsímavafra.
Ef þú færð aðra villu
Mögulegt er að villa sem ekki er tilgreind í þessari grein komi fram. Best er að hafa fyrst samband við banka þinn eða fjármálastofnun til að komast að ástæðu þess að ekki náist að vinna úr greiðslunni.
Prófaðu að nota annan greiðslumáta ef þú átt enn í vandræðum eða hafðu samband við okkur til að fá aðstoð við að finna lausn.
Greinar um tengt efni
- Gestur
Eitthvað fór úrskeiðis við greiðsluna
Þetta getur stafað af ýmsum ástæðum svo sem að kreditkortið sé runnið út eða vegna forvarna gegn svikum. Leitaðu upplýsinga hjá banka þínum … - Gestur
Greiðslumátar samþykktir
Við styðjum mismunandi greiðslumáta eftir því í hvaða landi greiðslureikningurinn er. - Gestur
Staðfestu kredit- eða debetkortið þitt þegar þú gengur frá greiðslu
Stundum þarf bankinn þinn að staðfesta hvort þú sért í raun að nota kreditkortið þitt til að greiða á Netinu.