Athuga tengiforrit
Tengiforrit virkja myndbönd, hreyfimyndir og leiki í Firefox. Hafðu auga með þeim og passaðu að þau séu uppfærð.
Passaðu að endurræsa Firefox eftir uppfærslur.
Algeng tengiforrit ætti að athuga oft.
Öll tengiforrit (0) berskjaldað
| Tengiforrit | Staða | Aðgerð |
|---|
| Tengiforrit | Staða |
|---|
| Tengiforrit | Aðgerð |
|---|
Algengar spurningar um tengiforrit
Þarfnastu hjálpar? Kíktu við á Mozilla Support.Hvað er tengiforrit?
- Tengiforrit eru lítil forrit sem birta myndir, hreyfimyndbönd og leiki í vafra.
- Þau eru búin til fyrir utan Firefox af fyrirtækjum eins og Adobe Systems og Apple.
Af hverju ætti ég að uppfæra tengiforrit?
- Úrelt tengiforrit geta aukið á hættu á árásum frá spilliforritum, vírusum og öðrum öryggishættum. Þau geta einnig valdið rofi á neti sem geta haft áhrif á upplifun í vafra.
- Uppfærð tengiforrit halda vafranum hraðvirkum og öruggum.
- Sum tengiforrit uppfærast ekki sjálfkrafa þannig að það er undir þér komið að athuga það öðru hverju.
Hvernig getur Firefox hjálpað mér?
Í framtíðinni, mun Firefox uppfæra tengiforritin fyrir þig. En þangað til, ættirðu að athuga reglulega þessa síðu og uppfæra tengiforritin til að vafri sé öruggur.
Hvernig get ég séð hvaða tengiforrit ég er með uppsett í Firefox?
Við fundum sjálfkrafa þessi tengiforrit sem eru hér fyrir ofan. Til að skoða öll tengiforrit sem eru í Firefox, fylgdu þessum leiðbeiningum:
- Opna .
- Veldu Viðbætur.
- Smelltu á Tengiforrits flipann.
Hvernig slekk ég á tengiforriti?
Í Firefox fyrir borðtölvu:
- Opna .
- Veldu Viðbætur.
- Smelltu á Tengiforrits flipann.
- Smelltu á flettivalmynd við hliðina á því tengiforriti sem þú vilt slökkva á.
- Veldu "Aldrei virkja" úr valmöguleikunum.
Aðvörun: Ef þú gerir tengiforrit óvirkt þýðir það að einhverjir hlutir hætta að virka. Sem dæmi, ef þú slekkur á Flash, þá geturðu ekki horft á myndbönd á sumum vefsíðum.