Tillögur birtast þegar slegið er inn í leitarreitinn. Notaðu örvarnar upp og niður við yfirferð. Ýttu á „enter“ til að velja. Ef nokkur orð eru valin saman eru þau notuð sem leitarstrengur. Ef tillagan er hlekkur opnast sú síða í vafranum.
Leiðbeiningar
Gestur

Bæta við eða fjarlægja greiðslumáta

Ef núverandi greiðslumáti fyrir aðgang þinn er rangur (t.d. útrunnið kreditkort) getur þú uppfært hann eða bætt við nýjum greiðslumáta.

    Bæta við greiðslumáta

    Þú getur sett inn kredit- eða debetkort eða annan greiðslumáta á aðganginn þinn.

    Svona bætir þú greiðslumáta við úr tölvu

    1. Smelltu á aðgangsstillingar > greiðslur og útborganir
    2. Smelltu á bæta greiðslumáta við

    Gestir í sumum löndum geta ekki vistað greiðslumáta á aðgang sinn

    Gestir með greiðslumáta í sumum löndum, eins og Indlandi og Brasilíu, geta mögulega ekki bætt greiðslumáta við aðgang sinn. Í því tilfelli þarftu að bæta greiðsluupplýsingum við á greiðslusíðunni þegar þú gengur frá bókuninni. Kynntu þér nánar hvaða greiðslumátar eru samþykktir í tilteknum löndum.

    Að fjarlægja greiðslumáta

    Þú getur tekið greiðslumáta út af aðgangi þínum nema hann sé í notkun fyrir bókun í vinnslu, yfirstandandi bókun eða bókun sem lauk fyrir minna en 14 dögum. Þú getur ekki heldur tekið greiðslumáta út ef gestgjafi hefur óskað eftir endurgreiðslu frá þér og endurgreiðslubeiðnin er enn í yfirferð hjá Airbnb.

    Svona fjarlægir þú greiðslumáta úr tölvu

    1. Smelltu á aðgangsstillingar > greiðslur og útborganir
    2. Smelltu á þrípunktinn við hliðina á greiðslumátanum
    3. Smelltu á fjarlægja

    Setja inn sjálfgefinn greiðslumáta

    Þú getur valið hvaða greiðslumáti birtist fyrst á lista yfir tiltæka greiðslumáta þína.

    Svona setur þú upp sjálfgefinn greiðslumáta úr tölvu

    1. Smelltu á aðgangsstillingar > greiðslumátar
    2. Smelltu á þrípunktinn við hliðina á greiðslumátanum
    3. Smelltu á stilla sem sjálfgefið
    Var þessi grein gagnleg?

    Greinar um tengt efni

    Fáðu aðstoð í tengslum við bókanir, aðganginn þinn og fleira.
    Innskráning eða nýskráning