Fáðu aðstoð ofurgestgjafa við skráningu eignar
Þú ert með nokkrar góðar hugmyndir fyrir fyrstu skráninguna þína. Viltu samt fá smá aðstoð? Spurðu ofurgestgjafa, okkar bestu gestgjafa, um leiðbeiningar við skráningu eignar sem geta hjálpa þér að fá fyrstu bókunina. Þú getur komist í kynni við hjálpsaman ofurgestgjafa á meðan þú ferð í gegnum startpakka Airbnb.
Það sem ofurgestgjafi getur gert í upphafi startpakkans
Eftir að þið tengist getur ofurgestgjafi:
- Yfirfarið opinberu notandalýsinguna þína sem gestgjafa
- Sent þér skilaboð í gegnum Airbnb
- Fengið tilkynningar um stöðu skráningarinnar, eins og þegar þú hleður upp myndum eða birtir hana
- Fengið tilkynningu þegar þú færð fyrstu bókunina
Ofurgestgjafar geta hjálpað þér að breyta skráningunni þinni ef þú vilt
Þú getur veitt ofurgestgjafanum aðgang að skráningu þinni þannig að viðkomandi geti gert breytingar eða leyst úr vandamálum. Þeir færa til dæmis oft staðsetningu eignarinnar til á kortinu þannig að hún birtist á réttum stað.
Þú samþykkir allar breytingar áður en þær eru sýndar gestum og þú getur alltaf lokað fyrir aðgang að breytingum. Ofurgestgjafinn hefur ekki lengur sjálfkrafa aðgang að breytingum eftir að skráningin hefur verið birt.
Hvað tekur við eftir að þú færð fyrstu bókunina
Þegar þú færð fyrstu bókunina aftengist þú sjálfkrafa ofurgestgjafanum. Þetta þýðir að við munum ekki lengur sýna viðkomandi upplýsingar um frammistöðu þína en þið munuð áfram geta sent skilaboð ykkar á milli.
Hafðu samband við þjónustuverið til að aftengjast áður en þú færð fyrstu bókunina.
Greinar um tengt efni
- Gestgjafi
Reglur um skráningar gerðar með hugbúnaði
Allar skráningar sem þú útbýrð með sérstökum hugbúnaði þurfa að uppfylla skráningarreglur okkar til að viðhalda samræmdu viðmóti fyrir gesti… Skilmálar fyrir fulltrúaþjónustu ofurgestgjafa
Lestu skilmála fyrir fulltrúaþjónustu ofurgestgjafa- Gestgjafi
Slökktu á lestrarkvittunum fyrir skilaboð
Sjálfgefið er að kveikt sé á lestrarkvittunum fyrir skilaboð á Airbnb en hægt er að slökkva á þeim.