Tillögur birtast þegar slegið er inn í leitarreitinn. Notaðu örvarnar upp og niður við yfirferð. Ýttu á „enter“ til að velja. Ef nokkur orð eru valin saman eru þau notuð sem leitarstrengur. Ef tillagan er hlekkur opnast sú síða í vafranum.
Leiðbeiningar
Gestur

Hvenær þú getur breytt greiðslumátanum

Þú getur alltaf bætt við greiðslumáta áður en þú bókar. Þegar greiðsla hefur verið gerð með ákveðnum greiðslumáta er þó ekki hægt að breyta skuldfærslunni í annan greiðslumáta. 

Ef þú ert með áætlaðar greiðslur getur þú breytt greiðslumátanum fyrir næstu greiðslu áður en gengið er frá henni. 

Ef þú hefur þegar greitt fyrir bókunina að fullu

Ef bókun þín hefur verið staðfest og greidd er ekki hægt að breyta um greiðslumáta.

Ef bókunin hefur ekki verið staðfest

Ef þú hefur óskað eftir að bóka eign en gestgjafinn hefur ekki svarað (bókunin er ekki staðfest) getur þú fallið frá bókunarbeiðninni og gert nýja beiðni með öðrum greiðslumáta.

Kynntu þér hvernig greiðslumáta er bætt við eða hann fjarlægður fyrir aðganginn þinn.

Ef þú bókaðir með því að nota greiðsluáætlun Airbnb

Ef þú hefur greitt fyrir bókun með því að nota greiða hluta núna, hluta síðar getur þú kynnt þér hvernig þú breytir greiðslumátanum fyrir væntanlegar greiðslur.

Ef þú bókaðir langdvöl

Ef dvölin varir í 28 nætur eða lengur getur þú kynnt þér hvernig þú breytir greiðslumátanum fyrir væntanlegar greiðslur.

Var þessi grein gagnleg?

Greinar um tengt efni

Fáðu aðstoð í tengslum við bókanir, aðganginn þinn og fleira.
Innskráning eða nýskráning