Öryggi er sameiginleg ábyrgð
Öryggi samfélagsins er í forgangi hjá okkur. Gestgjafar á Airbnb um allan heim lofa að fylgja uppfærðum öryggis- og ræstingarferlum vegna COVID-19 til að þú þurfir ekki að hafa áhyggjur á ferðalaginu. Þetta eru nýjar umbætur á öryggisviðmiðum Airbnb og við höfum beðið alla gestgjafa* um að lofa að fylgja þessum nýju reglum fyrir 20. nóvember 2020.

Þægindi vegna hreinlætis
Við erum að biðja gestgjafa um að lofa að fylgja fimm skrefa ferli okkar um ítarlegri ræstingar þar sem hreinsun á allri eigninni er betri en við venjuleg þrif. Ferlið, sem er viðurkennt af sérfræðingum, er mikilvægt skref til að tryggja öryggi samfélagsmeðlima okkar.

Einkarými, fjarri mannþröng
Einkaheimili. Snertilaus innritun. Mjög opin svæði utandyra. Andrými. Finndu gistingu með þeim þægindum sem skipta þig mestu þegar þú skipuleggur næstu ferð.
Einkaheimili. Snertilaus innritun. Mjög opin svæði utandyra. Andrými. Finndu gistingu með þeim þægindum sem skipta þig mestu þegar þú skipuleggur næstu ferð.
Svör við spurningum
Frá og með 20. nóvember verða allir gestgjafar (að Kína undanskildu) að lofa því að fylgja nýju öryggis- og ræstingarreglunum okkar vegna COVID-19 annars gætu verið gefnar viðvaranir vegna aðgangs, aðgangur gæti verið frystur og, í sumum tilvikum, gæti aðgangur verið fjarlægður af verkvangi Airbnb. Þú getur alltaf séð hvort gestgjafi hafi lofað að fylgja fimm skrefa ferlinu fyrir ítarlegri ræstingar. Leitaðu bara að gliturtákni og „aukið hreinlæti“ efst á skráningarsíðu gestgjafans. Frekari upplýsingar um aukið hreinlæti hjá Airbnb.
Allir gestgjafar og gestir verða einnig að fylgja nauðsynlegum öryggisreglum vegna COVID-19, sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin og Sóttvarnarstofnun Bandaríkjanna mæla með, meðan á dvöl stendur. Þær varða meðal annars grímunotkun og nándarmörk í samskiptum við alla sem eru ekki í hópnum sem bókaði, til dæmis gestgjafinn. Við mælum að sjálfsögðu með því að taka hvorki á móti gestum né ferðast hafir þú verið nálægt einhverjum með COVID-19 eða ef þú sýnir sjúkdómseinkenni. Yfirfarðu samfélagslegar heilbrigðisreglur vegna COVID-19.
Þú getur ávallt spurt gestgjafa sérstaklega út í heilsu- og öryggisreglur viðkomandi með Airbnb appinu.
Ef þú þarft að breyta bókun eða afbóka finnur þú frekari upplýsingar um afbókunarleiðir í boði í ferðahlutanum á vefsíðu Airbnb eða í appinu. Hér eru leiðbeiningar fyrir gesti við afbókun og um afbókunarreglur. Gestir sem bókuðu 14. mars 2020 eða fyrr og geta ekki ferðast vegna COVID-19 eiga mögulega rétt á afbókun án endurgjalds. Frekari upplýsingar um reglur okkar um gildar málsbætur.
Í úrræðamiðstöð vegna COVID-19 fyrir ferðalanga má finna greinar og hjálpargögn um ferðatakmarkanir, reglur og fleira.
Opnað hefur verið fyrir upplifanir Airbnb í þeim löndum sem það er heimilt samkvæmt gildandi opinberum reglum. Gert er ráð fyrir því að gestir og gestgjafar standist tilteknar öryggisreglur fyrir staðbundnar upplifanir sem varða til dæmis nándarmörk, grímunotkun og að halda sig heima hafi maður verið útsettur fyrir COVID-19 eða finni til veikinda. Frekari upplýsingar um reglur okkar varðandi heilsu og öryggi í upplifunum.
Þú getur skoðað einkabókun ef þú vilt bara fara í upplifunina með þínum hópi. Þú getur skoðað netupplifanir okkar ef þér finnst óþægilegt að vera í hópi eða ef ekki er búið að opna aftur fyrir upplifanir þar sem þú ert.
Gestgjafar ákvarða afbókunarreglur hjá sér en þær geta verið sveigjanlegar, hóflegar eða strangar fyrir hverja skráningu. Nánari upplýsingar um afbókunarreglu gistingar er að finna á aðalsíðu hverrar skráningar. Við höfum bætt við nýrri leitarsíu til að auðvelda leitina að gistingu með sveigjanlega afbókunarreglu. Frekari upplýsingar um nýju síuna.
Gestgjafar geta fundið greinar og hjálpargögn til að takast á við gestaumsjón í heimsfaraldri COVID-19, og í framhaldinu, í úrræðamiðstöð okkar fyrir COVID-19. Frekari upplýsingar um fimm skrefa ferli Airbnb fyrir ítarlegri ræstingar er svo að finna í handbók okkar um ítarlegri ræstingar.
Frá og með 20. nóvember verða allir gestgjafar að skuldbinda sig til að fylgja nýju reglunum okkar um öryggi og ræstingar vegna COVID-19. Ef þú staðfestir ekki kröfurnar fyrir þennan dag getur verið að aðgangur þinn sæti varnaðarorðum, frystingum og, í sumum tilvikum, afskráningar af Airbnb.